Tuesday, 29 July 2008

Home sweet home

Jæja þá er fríið búið, allavega í bili. Þetta var alveg frábær ferð, ekki rólegasta frí sem við höfum farið í en skemmtileg var það.
Við byrjuðum á að fara til Amsterdam, tókum ferjuna yfir til Calais og keyrðum þaðan. Við vorum tvær nætur í Amsterdam, keyrðum svo yfir til Prag (11 tímar) vorum þar í 2 nætur og enduðum svo á Móseldalnum í Þýskalandi þar sem við vorum tvær nætur í litlum bæ sem heitir Alken og er rétt utan við Koblenz.
Það var náttúrulega stíf dagskrá hjá okkur allan tímann, ekki annað hægt þegar maður skoðar svona mikið á ekki lengri tíma.
Við vorum ekki hrifin af hótelinu sem við vorum á í Amsterdam, það var reyndar vel staðsett, alveg við Dam torgið, en óttalega lélegt. Við byrjuðum á að biðja um ný herbergi og fengum þá aðeins skárri, en næst ætlum við ekki að gista þarna. Í Amsterdam fórum við meðal annars á Dam torgið, í Rauða hverfið og skoðuðum mjósta húsið í Amsterdam. Við fórum líka í Amsterdam Dungeon sem var alveg ótrúlega skemmtilegt og skoðuðum hús Önnu Frank sem ég held að allir sem koma til Amsterdam ættu að gera.
Eftir laaaaaanga keyrslu til Prag komum við á hótelið sem var alveg frábært. Það var aðeins utan við miðbæinn, í göngufæri samt, en þegar við vorum búin að læra á sporvagnana þá var mjög auðvelt að nota þá. Ég held að Prag sé fallegasta borg í Evrópu ef ekki í heimi. Þetta er eins og að vera í ævintýralandi og við bara nutum þess að vera þarna og skoða okkur um. Ég ætlaði að kaupa mér glös í Prag en verðið á þeim er þvílíkt að ég tímdi því ekki. Ég held að það sé ódýrara að kaupa bara tékkneskan kristal í London!
Síðasti staðurinn sem við vorum á var svo Alken í Þýskalandi, pínulítill bær við Mósel. Við áttum ekki pantaða gistingu en fundum hótel þar sem við gátum fengið tvö þriggja manna herbergi. Við erum ekki alveg viss hvort þetta hótel var sérstaklega fyrir eldri borgara, við vorum allavega laaaaang yngst þarna og það voru pissudúkar á öllum rúmum! Við keyrðum eftir Mósel dalnum og skoðuðum Bernkastel þar sem við fengum okkur Svartaskógartertu með kaffinu, og um kvöldið gengum við upp í Burg Thurant sem er kastali fyrir ofan bæinn sem við gistum í.
Á leiðinni þangað fórum við yfir vínræktarsvæði í hlíðinni, og áður en við fórum heim keyptum okkur kassa af hvítvíni sem er búið til úr berjum þaðan.
Föstudagurinn fór svo í að keyra heim og við vorum komin um kvöldmatarleytið, meira að segja á undan áætlun!
Á laugardaginn vorum við svo með grillveislu fyrir vinnufélaga Þóris, mjög skemmtilegt og að sjálfsögðu buðum við upp á hvítvín úr Móseldalnum.
Myndir

4 comments:

Anonymous said...

Velkomin heim og gott að heyra að ferðin var ánægjuleg.
Á Fróni er sól og hiti og verður víst svo næstu daga.

Það væri kannski ágætt að vita nafnið á hótelinu í Alken:)

Kv. M. (Alveg að verða eldri borgari).

stina said...

StinaGott að ferðin gekk vel og var ánægjuleg.

Hér á Fróni, er hvert hitastigið slegið hvað eftir annað.

Kv.M.

Anonymous said...

Flott ferð og skemmtilegar myndir. Eruð þið nokkuð að missa Atla yfir tvo metrana?

Anonymous said...

Hæ hæ
gaman að heyra að ferðin var vel heppnuð, lýst það vel á myndirnar að ég gæti alveg hugsað mér að fara að fara í bílferðalag í Evrópu. nenni því samt ekki fyrr en gríslingarnir mínir hætta að vera bílveikir:(
En en, er samt alltaf á leiðinni til ykkar en verða að selja fyrst og það er ekki að skotganga í þessu árferði því miður. Hafið það sem allra best og bestu kveðjur úr Mosó... Anna Björg