Friday, 18 July 2008

Sumarfrí

Við erum öll í fullu fjöri þó að það hafi ekki heyrst í okkur lengi.
Ég er að vinna í lokaverkefninu mínu, ekki á neinu flugi svosem, en þetta mjakast. Atli og Unnur eru komin í fjarnám í Versló til að undirbúa sig fyrir skólann í haust, og nú er ekki nema mánuður í að þau fari til Íslands. Borgar og Vignir byrja í sumarfríi í sínum skólum eftir daginn í dag og verða í fríi fram í byrjun sepember.
Við erum að fara í ferðalag í fyrramálið. Leggjum eldsnemma af stað, ætlum að keyra til Amsterdam og vera þar í tvær nætur, halda síðan áfram til Prag og vera þar í tvær nætur og síðan í "óvissuferð" um Þýskaland. Við ætlum að keyra gegnum Móseldalinn, óvissan felst í því að við eigum ekki neina bókaða gistingu þar. Þurfum að finna okkur gistiheimili þegar við komum þangað.

4 comments:

Anonymous said...

Góða ferð!
Kv. M.

stina said...

Góða ferð, og góða skemmtun

Kv. M.

Anonymous said...

Ég var einmitt að hringja í ykkur, var búin að flýta ferðalaginu um viku og hélt að þið hefðuð komið heim þessa helgi :).
Skemmtið ykkur vel.

Anonymous said...

Góða ferð og skemmtun. Munið bara að læsa bílnum í gamla austrinu