Ég fór í gær og skilaði lokaverkefninu mínu og þar með hef ég lokið náminu. Ég er að sjálfsögðu himinlifandi yfir því að vera búin en á sama tíma örlítið leið yfir að náminu skuli vera lokið, þetta er búið að vera svo skemmtilegt. Þórir, Borgar og Vignir fóru með mér og þegar við vorum búin að láta binda ritgerðina inn skila henni og skoða skólann minn héldum við upp á daginn með því að fara í kampavínspiknik í Hyde Park.
Friday, 29 August 2008
Wednesday, 27 August 2008
Cat woman - 2. kafli
Frá því að við komum hingað hef ég verið að reyna að laða að mér tvo ketti sem koma stundum í garðinn hjá okkur, við vitum núna að annar þeirra á heima í næsta húsi. Loksins vildu þeir tala við mig því í gær fékk ég að klappa þeim báðum. Þeir eru samt ennþá mjög styggir og hræddir við allar snöggar hreyfingar. Í dag kom svo annar þeirra inn til okkar svo að þetta er allt að koma, þeir verða örugglega orðnir bestu vinir okkar þegar við flytjum aftur til Íslands!
at
17:51
2
comments
Friday, 22 August 2008
Flutt til Íslands
Þar kom að því, Atli og Unnur eru flutt aftur til Íslands, fóru á miðvikudaginn. Þau byrjuðu svo í skólanum í gær, fimmtudag,
Atli í Kvennó og Unnur í MH. Það er voðalega skrýtið að þau séu farin, frekar rólegt á heimilinu þessa dagana enda erum við bara fjögur núna.
at
09:31
0
comments
Wednesday, 13 August 2008
Skýfall
Það rignir alveg svakalega hér þessa dagana. Sem Íslendingur þykist ég nú þekkja rigningu býsna vel, en þetta er alveg nýtt fyrir mér. Í gærmorgun vaknaði ég við rigninguna og það var eins og húsið væri staðsett í miðjum Dettifossi þvílík voru lætin.
at
11:44
1 comments