Friday, 29 August 2008

Búin að skila

Ég fór í gær og skilaði lokaverkefninu mínu og þar með hef ég lokið náminu. Ég er að sjálfsögðu himinlifandi yfir því að vera búin en á sama tíma örlítið leið yfir að náminu skuli vera lokið, þetta er búið að vera svo skemmtilegt. Þórir, Borgar og Vignir fóru með mér og þegar við vorum búin að láta binda ritgerðina inn skila henni og skoða skólann minn héldum við upp á daginn með því að fara í kampavínspiknik í Hyde Park.

4 comments:

Anonymous said...

Til hamingju með skil á ritgerð og.....SKÁL!!!!

Anonymous said...

Til Hamingju. Lestu svo bara Dostoevsky á rússnesku til að fylla tómarúmið í sálu þinni við námslokin

kv. Jói

Unknown said...
This comment has been removed by the author.
stina said...

Til hamingju, þetta er alveg æðislega vel gert hjá þér, bara búin að skila. Er ekki skrítið að þurfa ekki að hugsa um að fara læra, þegar þú vaknar á morgnana?
Kv. til ykkar allra:-)

Mamma(tengdó)