Ég náði loksins að klára vettlingana og þó að þeir hafi tekist býsna vel þá eru þeir heldur stórir. Veit einhver hversu mikið Lanett garn hleypur ef það er þvegið í þvottavél við 50°?
Thursday, 18 September 2008
Búin með vettlingana
at
14:27
3
comments
Friday, 12 September 2008
Saumaklúbbur
Mér var boðið í enskan saumaklúbb í gær sem var mjög skemmtilegt og töluvert ólíkt þeim saumaklúbbum sem ég þekki.
Í fyrsta lagi heitir þetta knitting club en ekki sewing club, í öðru lagi var boðið upp á hvítvín og hnetur en ekki kökur og brauðrétti og í þriðja lagi er prjónað allan tímann! Það er auðvitað spjallað og slúðrað heil ósköp en það eru allir að prjóna.
Mér fannst ógurlega gaman að sjá hvernig enskar konur prjóna, þær gera þetta allt öðru vísi en við og þeim fannst held ég jafn furðulegt að sjá mína aðferð, það skrýtna er samt að þrátt fyrir þessar gjörólíku aðferðir er útkoman nákvæmlega sú sama.
Blessunarlega var ég með eitthvað á prjónunum sem ég gat tekið með mér, Vestfirska rósavettlinga, gaman að vera með íslenska handavinnu.
at
12:05
2
comments
Tuesday, 9 September 2008
Flutningar
Við erum búin að kaupa flug til Íslands 10. október svo að það er mánuður þangað til. Við fáum húsið okkar í Hrauntungunni afhent 1. október en höfum húsið hérna til 15. október svo að þetta passar allt ágætlega. En nú þurfum við víst að fara að pakka!
at
16:57
0
comments
Friday, 5 September 2008
Skemmtilegasta nafnaruglið
Ruglið í kringum nöfnin okkar er búið að vera alveg ótrúlega skemmtilegt. Bretum virðist finnast það alveg óskiljanlegt að í fjölskyldu sem inniheldur hjón með fjögur börn skuli vera fjögur mismunandi ættarnöfn, enda höfum við mjög oft verið kölluð Mr. and Mrs. Thorisson svo ekki sé talað um öll skiptin sem ég hef verið kölluð Mrs. Skulason. Í gær var hringt til okkar frá Sainsburys, Þórir svaraði í símann og var spurður hvort þetta væri Mr. Sigurgeirsdottir.
at
15:00
2
comments
Wednesday, 3 September 2008
Síðasti frídagurinn hjá Vigni
Í dag er síðasti frídagurinn hjá Vigni, skólinn hans byrjar í fyrramálið. Hann fer á 5. ár, fær nýjan kennara og verður í nýjum bekk þar sem bekkjunum verður skipt upp og raðað í þá upp á nýtt. Borgar byrjar svo í sínum skóla næsta mánudag, 8. september. Það er svosem ekkert sérstakt á dagskrá þennan síðasta frídag annað en að fara með drenginn í klippingu, það er að segja ef ég næ honum frá George vini sínum.
at
07:59
1 comments