Wednesday, 3 September 2008

Síðasti frídagurinn hjá Vigni

Í dag er síðasti frídagurinn hjá Vigni, skólinn hans byrjar í fyrramálið. Hann fer á 5. ár, fær nýjan kennara og verður í nýjum bekk þar sem bekkjunum verður skipt upp og raðað í þá upp á nýtt. Borgar byrjar svo í sínum skóla næsta mánudag, 8. september. Það er svosem ekkert sérstakt á dagskrá þennan síðasta frídag annað en að fara með drenginn í klippingu, það er að segja ef ég næ honum frá George vini sínum.

1 comment:

stina said...

Hæ! náðirðu honum í klippingu, frá George vini sínum?
Og hvernig var svo fyrsti skóladagurinn hans?

Kv. amma