Mér var boðið í enskan saumaklúbb í gær sem var mjög skemmtilegt og töluvert ólíkt þeim saumaklúbbum sem ég þekki.
Í fyrsta lagi heitir þetta knitting club en ekki sewing club, í öðru lagi var boðið upp á hvítvín og hnetur en ekki kökur og brauðrétti og í þriðja lagi er prjónað allan tímann! Það er auðvitað spjallað og slúðrað heil ósköp en það eru allir að prjóna.
Mér fannst ógurlega gaman að sjá hvernig enskar konur prjóna, þær gera þetta allt öðru vísi en við og þeim fannst held ég jafn furðulegt að sjá mína aðferð, það skrýtna er samt að þrátt fyrir þessar gjörólíku aðferðir er útkoman nákvæmlega sú sama.
Blessunarlega var ég með eitthvað á prjónunum sem ég gat tekið með mér, Vestfirska rósavettlinga, gaman að vera með íslenska handavinnu.
Friday, 12 September 2008
Saumaklúbbur
at
12:05
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Já, þær ensku gera einfalda aðgerð mjög flókna þegar þær prjóna og má segja að það sé einskonar list.
Bestu kveðjur til Mr. Sigurgeirsdóttur og ykkar allra.M.
Mér líst vel á veitingarnar, spurning um að stofna prjónaklúbb :).
Sjáumst fljótlega,
Helena
Post a Comment