Ruglið í kringum nöfnin okkar er búið að vera alveg ótrúlega skemmtilegt. Bretum virðist finnast það alveg óskiljanlegt að í fjölskyldu sem inniheldur hjón með fjögur börn skuli vera fjögur mismunandi ættarnöfn, enda höfum við mjög oft verið kölluð Mr. and Mrs. Thorisson svo ekki sé talað um öll skiptin sem ég hef verið kölluð Mrs. Skulason. Í gær var hringt til okkar frá Sainsburys, Þórir svaraði í símann og var spurður hvort þetta væri Mr. Sigurgeirsdottir.
Friday, 5 September 2008
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
2 comments:
Nafnaruglið er nú alltaf svolítið fyndið. Mér finnst afar skemmtilegt þegar menn víðs vegar um heiminn horfa framan í mig með spurnarsvip og segja "welcome mr Einsteinson"
kv Mr Eysteinsson
Hæ! já það getur verið neyðarlegt, ég er búin að sitja hér í tvær mínútur og hlegið svo tárin hafa runnið niður kinnarnar á mér.
Hamingjuóskir með elsku Borgar minn, bara stór fimmtán ára í dag:-)
Vona að þið hafið fengið gott að borða.
Kv. mamma(tengdó)
Post a Comment