... hvað það er leiðinlegt að flytja. Við erum á fullu núna að pakka og þó að við séum ekki með mikið af dóti þá er þetta alltaf jafn hrútleiðinlegt. Við náðum að selja öll húsgögnin okkar á ebay, þar á meðal rúmin, svo að núna sofum við á vindsængum sem við fengum lánaðar. Það gæti verið verra, við gætum þurft að sofa á gólfinu. Við vorum svo heppin að sófarnir verða ekki sóttir fyrr en á laugardaginn þannig að við getum ennþá látið fara vel um okkur á kvöldin.
Tuesday, 7 October 2008
Subscribe to:
Posts (Atom)