Ég skráði mig í áskrift að lífrænt ræktuðu grænmeti og fékk fyrstu sendinguna í dag. Ég byrjaði nú bara á minnsta kassanum til að sjá hvernig mér líkar þetta, en það kemur mismunandi sending í hverri viku, eftir því hvað er ferskast hverju sinni. Mér finnst ótrúlega spennandi að fá svona grænmetissendingu í hverri viku! Ef ykkur langar til að skoða fyrirtækið þá er þetta slóðin www.riverford.co.uk
Wednesday, 30 January 2008
Beint frá bónda
at
12:22
2
comments
Sunday, 27 January 2008
Snowey the hamster

Bekkurinn hans Vignis á hamstur sem krakkarnir skiptast á að taka með sér heim um helgar. Þessa helgi var komið að Vigni að fá Snowey heim, hann var búinn að bíða með eftirvæntingu eftir því. Hamsturinn er algjört krútt og það fer ekki á milli mála að þessi fjölskylda er búin að vera í gæludýrasvelti í hálft ár, við erum búin að skiptast á að halda á honum og dást að honum alla helgina, ég hugsa jafnvel að greyið litla verði feginn að komast aftur í skólann á morgun þar sem hann fær að vera í friði.
at
12:05
2
comments
Friday, 25 January 2008
Tannlæknir
Við fórum með krakkana til tannlæknis í vikunni, höfum ekki farið síðan við komum hingað. Þetta var bara skoðun, ekkert gert, en þegar kom að því að borga urðum við aldeilis hissa, kostaði ekki neitt!
Þetta er náttúrulega alveg frábært, mikið vildi ég að þetta væri svona á Íslandi!
at
18:35
1 comments
Wednesday, 23 January 2008
Komment
Ég veit að einhverjir hafa verið í vandræðum með að skrifa komment því það hefur verið beðið um aðgangsorð. Ég held að þess þurfi ekki lengur, endilega prófið :-)
at
23:21
4
comments
Tuesday, 22 January 2008
Skólinn byrjaður aftur
Ég byrjaði aftur í skólanum í síðustu viku. Ég er í fjórum fögum eins og á síðasta misseri, Database Systems Analysis and Design, Legal and Social Aspects, Server Technologies and Programming og XML. Ég er í skólanum á þriðjudögum frá 2-5, fimmtudögum frá 10-5 og föstudögum frá 2-5.
7. febrúar á ég ásamt tveimur öðrum að stýra umræðum í Legal and social aspects tímanum, umræðuefnið er Health information. Ég get nú ekki sagt að ég hlakki til, en það verður gott þegar þetta verður búið!
at
10:46
1 comments
Monday, 21 January 2008
Parísarferðin
Parísarferðin var alveg meiriháttar skemmtileg. Veðrið var fínt og hótelið alveg ljómandi og hvað er hægt að biðja um meira? Við lögðum af stað kl. 6 á laugardagsmorgun og vorum komin til Parísar um hádegi. Lentum í smá vandræðum með að finna bílastæði en fundum loksins bílastæðahús í göngufæri frá hótelinu. Á laugardeginum fórum við og skoðuðum Notre Dame, röltum um Latínuhverfið og settumst inn á kaffihús þar, fórum svo og skoðuðum Sacre Coeur, röltum um í Montmartre og fengum okkur kvöldmat þar. Við vorum komin seint upp á hótel og allir þreyttir eftir ferðalagið svo að fórum bara beint að sofa. Eftir morgunmat á sunnudag fórum við í Eiffelturninn, fórum alla leið upp á efstu hæð! Skoðuðum svo Sigurbogann og Champs Elysees, komum örstutt við á Bastillutorginu á leiðinni að sækja bílinn,brunuðum svo heim og vorum komin um 11.
Krökkunum fannst svo gaman í París að ég held að þau vilji öll flytja þangað og næst þegar við flytjum til útlanda þá vilja þau að við flytjum til Parísar :-) Við stefnum á að fara í að minnsta kosti eina svona Parísarferð í viðbót, þetta er ótrúlega lítið mál (segi ég sem þurfti ekki að keyra í París).
Myndir
at
09:38
1 comments
Monday, 14 January 2008
París
Við fjölskyldan erum að fara til Parísar um næstu helgi, leggjum af stað á laugardagsmorgun og komum heim aftur á sunnudagskvöld. Við pöntuðum okkur hótel gær, það heitir New Hotel Candide og við völdum það vegna þess að það býður upp á bílastæði og átti laus tvö þriggja manna herbergi.
at
10:42
1 comments
Thursday, 10 January 2008
Til Íslands
Atli og Unnur eru á leiðinni til Íslands í febrúar. Þau verða í vetrarfríi 15. - 24. febrúar og ætla að eyða því á Íslandi. Þau fá ferðina frá okkur í afmælisgjöf. Við keyptum flug hjá British Airways, það fer hver að verða síðastur að fljúga með þeim til Íslands, því miður, því þeir eru ódýrastir og Gatwick er næstur okkur af flugvöllunum í London.
at
09:30
1 comments
Monday, 7 January 2008
Jólin búin
Jæja þá eru jólin búin! Við tókum jólaskrautið niður í gær, ég var nú eiginlega búin að fá alveg nóg af því og var hálf fegin að losna við það. Það er nú samt alltaf mun skemmtilegra að setja skrautið upp en að taka það niður.
Atli Unnur og Borgar byrjuðu aftur í skólanum í morgun, en Vignir byrjar ekki fyrr en á morgun. Við vorum búin að gleyma því að hans skóli byrjaði ekki fyr en 8. jan og fórum út í skólann hans áðan, en þar var auðvitað allt lokað og læst.
at
09:21
0
comments
Friday, 4 January 2008
Gleðilegt ár!
Gleðilegt ár öll og takk fyrir það sem var að líða. Við erum búin að hafa það alveg ógurlega gott yfir jól og áramót, vorum í algjörri afslöppun, borðuðum, sváfum, lásum, spiluðum og horfðum á sjónvarpið. Við vorum með gesti yfir áramótin, Ingunn vinkona Unnar og mamma voru hjá okkur. Við elduðum kalkúna eins og venjulega á gamlárskvöld, horfðum á skaupið og fórum svo út kl. 12 að fylgjast með flugeldunum. Það var nú ekki mikið skotið upp! Ég held að allt hverfið hafa verið með álíka mikið af flugeldum og ein meðal fjölskylda á Íslandi, ekki að við getum leyft okkur að hneykslast á því þar sem við keyptum enga flugelda í ár.
at
06:14
1 comments