Jæja þá er afmælistímabilið hafið! Venjulega stendur það yfir í 12 daga en þar sem í ár er hlaupár þá stendur það yfir í 13 daga. Atli og Unnur eiga afmæli í dag, eru 17 ára, ég á afmæli á laugardaginn, Þórir á afmæli á föstudag í næstu viku eða 7. mars og svo Vignir þriðjudaginn þar á eftir eða 11. mars. Það verður nú heldur minna um afmælisveislur en venjulega en í staðinn förum við mun meira út að borða en venjulega!
Thursday, 28 February 2008
Saturday, 16 February 2008
Sushi
Við fórum í heimsókn til Bjarka og Ingibjargar í Canterbury í desember og fengum þá meðal annars kennslu í sushi-gerð. Við erum búin að æfa okkur tvisvar sinnum og þó að við séum ekki næstum því jafn flink og þau þá erum við nú samt bara býsna góð, þó ég segi sjálf frá! Og þetta er svoooooo gott!
at
08:42
3
comments
Friday, 15 February 2008
Farin til Íslands
Jæja þá eru Atli og Unnur farin til Íslands. Þau flugu kl. 8 í morgun, allt gekk vel og þau eru lent. Pabbi Róberts, vinar Atla, sótti þau á flugvöllinn. Það verður væntanlega stíf dagskrá hjá þeim allan tímann meðan þau eru á Íslandi að hitta ættingjana og vinina og þau eru búin að hlakka ógurlega mikið til.
at
13:04
1 comments
Thursday, 14 February 2008
Þroskaður nemandi
Ég tók um daginn þátt í vefkönnun á vegum stúdentafélagsins í skólanum. Það var verið að kanna viðhorf stúdenta til félagsins og hversu mikið þeir vissu um starfsemi þess. Ein spurningin var "Are you a mature student (over 23)"
at
18:41
2
comments
Sunday, 10 February 2008
Vorið komið
Eftir því sem veðurfræðingarnir segja þá er veturinn búinn og vorið komið. Veðrið er búið að vera alveg frábært undanfarna daga, sól og blíða og blómin farin að springa út, það fer sennileg að líða að vorverkum í garðinum hjá okkur.
Við Unnur fórum í heilsubótarferð inn í Bromley áðan (retail therapy) og settumst á kaffihús, við sátum úti því veðrið var svo gott, 12 stiga hiti og hlýtt og gott í sólinni.
at
17:24
1 comments
Friday, 8 February 2008
Wednesday, 6 February 2008
Pancake day
Hér í Englandi er enginn Bursting day (Sprengidagur) en í staðinn eru þeir með Pancake day. Mér skilst að hefðin sé sú að þennan dag séu borðaðar pönnukökur með sykri og sítrónu. Þar sem við áttum ekkert saltkjöt, krökkunum til ómældrar ánægju, þá tókum við pönnukökudaginn með algjöru trompi og borðuðum pönnukökur í alla mata! Í morgunmat voru amerískar pönnukökur, í kvöldmat voru fylltar pönnukökur og í eftirrétt voru pönnukökur með súkkulaði og jarðarberjum.
at
08:19
0
comments
Saturday, 2 February 2008
Súkkulaðigosbrunnur
Ég hef alltaf verið á þeirri skoðun að súkkulaðigosbrunnar séu frekar ógirnilegir, en í vikunni lét ég undan þrýstingi frá krökkunum og keypti einn. Þeir eru alls staðar á tilboði núna fyrir Valentínusardaginn og ég fékk einn lítinn eldrauðan fyrir slikk.
Í gærkvöldi prófuðum við svo græjuna, vorum með tvenns konar mjólkursúkkulaði sem við bræddum saman og bættum við olíu eins og er mælt með. Útkoman var sko ekki jafn glæsileg og á umbúðunum, þar er mynd af fallega flæðandi súkkulaði sem streymir jafnt yfir gosbrunninn en okkar svona frussaðist meira í gusum og var ekki mjög fallegt, kannski er ekki sama hvaða súkkulaði er notað. En þetta var samt voðalega gott, og við borðuðum einhver ósköp - svo mikið að ég held að mig langi ekki í súkkulaði í bráð!
at
10:05
1 comments
