Sumardagurinn fyrsti er ekki haldinn hátíðlegur hér, svo að í staðinn fyrir skrúðgöngur og hátíðarhöld sem við erum vön þá eru bara allir í vinnu eða skóla, nema Borgar. Hann er heima í dag vegna þess að kennararnir hans eru í eins dags verkfalli í dag.
Ætli við höldum nú samt ekki í hefðina og grillum í kvöld eins og við gerum venjulega á sumardaginn fyrsta.
Við Unnur kvöddum veturinn með stæl í gærkvöldi, fórum og lærðum að dansa salsa. Það eru tímar á hverju miðvikudagskvöldi hérna niðri í bæ, bæði fyrir byrjendur og lengra komna. Við vorum í byrjendahópnum í gær og stóðum okkur bara ljómandi vel þó að ég segi sjálf frá. Í næstu viku ætlum við aftur en þá ætlum við að vera með þeim sem eru lengra komnir!
Upplýsingar um salsaklúbbinn
Thursday, 24 April 2008
Gleðilegt sumar!
at
09:57
4
comments
Monday, 21 April 2008
Skólinn byrjaður aftur
Skólinn hjá krökkunum byrjaði aftur í morgun. Það gekk alveg ótrúlega vel að koma liðinu á fætur miðað við að það voru allir búnir að snúa sólarhringnum við í fríinu og það komust allir á réttum tíma í skólann. Og nú er bara talið niður í næsta frí!
at
09:18
1 comments
Sunday, 13 April 2008
Grill
Nú þegar snjórinn er farinn og komið vor í loftið finnst okkur að það sé orðið tímabært að taka grillið fram. Þar sem við áttum ekkert grill til að taka fram þá fórum við og keyptum okkur eitt stykki. Alabama 4 brennara risastórt úr stáli. Okkur brá örlítið þegar við komum með það heim því það virkaði aðeins minna í búðinni, en stór fjölskylda þarf stórt grill svo að þetta er bara besta mál. Við vígðum grillið svo í gærkvöldi með Nýsjálensku lambakjöti og fullt af grænmeti, og það virkaði sko heldur betur vel, hægt að hafa mismunandi hita undir öllu, alveg frábært.
Nú og svo verður bara grillað út í eitt.
at
10:46
3
comments
Thursday, 10 April 2008
Tívolí
Við skelltum okkur í tívolíið í Crystal Palace í gær, Það er sennilega af svipaðri stærðargráðu og tívolíið í Smáralind, eitthvað fyrir alla.
Við fórum nokkrar ferðir, byrjuðum á að fara í risastórt tæki sem var ekki með neina lágmarks hæð svo að Vignir fékk að koma með í það. Þegar við vorum komin af stað kom í ljós að þetta var algjört hryllingstæki og ég veit ekki hvort okkar, ég eða Vignir, var hræddara meðan á þessu stóð og okkur var sveiflað aftur á bak og áfram á hvolfi yfir hálfa London. Allavega eftir þessa bunu þá kom ekki til mála hjá okkur tveimur að fara í fleiri svona stór tæki, meðalstóru tækin voru alveg látin duga meðan Þórir og Borgar héldu áfram í risatækjunum.
En þetta var samt voðalega gaman, verst að ég er með verki í baki, öxlum og handleggjum í dag, sennilega eftir að ríghalda mér stíf af hræðslu í hryllingstækinu.
at
12:44
0
comments
Wednesday, 9 April 2008
Nöfn
Eftirnafnið mitt er heilir 16 stafir og hér þykir alveg óheyrilega erfitt bæði að segja það og skrifa. Hvað þá þegar öll fjölskyldan er saman og það eru fjögur mismunandi eftirnöfn, öll erfið!
Ég hef þess vegna alls ekki efni á að furða mig á nöfnum annarra, en.... ég er að lesa bók eftir I.T. Hawryszkiewycz. Hvernig í veröldinni ber maður þetta nafn fram?
at
11:32
1 comments
Monday, 7 April 2008
Snjór!
Það eru búnar að verða ótrúlegar breytingar á veðrinu síðustu daga.
Á föstudaginn fór hitinn upp í 19 stig og á föstudagskvöldið þegar við vorum á leiðinni heim frá að keyra Atla og Unni á flugvöllinn var alls staðar setið úti og fólk var léttklætt. Í gærmorgun byrjaði svo að snjóa og það snjóaði heilmikið! Fótboltanum var aflýst bæði hjá Borgari og Vigni út af snjónum svo að Vignir fór í staðinn út að leika sér í snjónum. Við skruppum inn í Croydon um hádegið og leiðin þangað var vörðuð snjókörlum!
Myndir
at
07:52
3
comments
Saturday, 5 April 2008
Spring break
Það er vorfrí í skólunum núna, stendur til 21. apríl. Þetta bætir krökkunum heldur betur upp hvað páskafríið var stutt. Atli og Unnur fóru til Íslands í gær og verða þar í rúma viku, en Borgar og Vignir verða heima, við ætlum að reyna að gera eitthvað sekmmtilegt með þeim á meðan. Við sáum það í gær að í tilefni af fríinu er búið að setja upp tívolí víðs vegar um London, meðal annars eitt í Crystal Palace garðinum sem er ekki langt frá okkur, kannski að við skellum okkur bara í tívolí.
at
09:03
1 comments