Við horfðum að sjálfsögðu á Eurovision í gær og urðum afskaplega kát þegar kom í ljós að Ísland komst áfram. Við álítum okkur nú eiga dálítinn þátt í því, þar sem við tókum þátt í símakosningunni og kusum úr öllum símum á heimilinu, það voru þó nokkur atkvæði sem Ísland fékk þar!
Friday, 23 May 2008
Thursday, 22 May 2008
Glataður/græddur dagur...
...það fer eftir því hvernig á það er litið.
Ég þurfti að taka eitt próf og hélt að það ætti að vera í dag, fimmtudag. Á mánudagskvöldið komst ég hins vegar að því, mér til mikillar skelfingar, að prófið var á miðvikudegi en ekki fimmtudegi. Þetta þýddi að ég hafði einum degi minna til að læra fyrir það og kallaði á mikinn maraþonlestur.
Í gær fór ég svo í prófið og í staðinn á ég frí í dag. Er maður ekki alltaf að græða?
at
08:15
3
comments
Friday, 2 May 2008
Íkornar
Í garðinum við skólann minn býr íkornapar, og þau eru feitustu og gæfustu íkornar sem ég hef séð. Þau sníkja endalaust af fólki sem gengur fram hjá þeim og þegar maður sest á bekkina í garðinum til að borða nestið sitt þá koma þau iðulega til manns og sníkja. Annað þeirra hefur meira að segja skriðið upp á lærið á mér til að sníkja mat. Þetta gerir þau að sjálfsögðu alveg ómótstæðileg og er til þess að lang flestir gefa þeim að borða og þess vegna eru þau orðin alveg spikfeit.
Við Vignir fórum í skólann minn í gær að skila verkefni og hittum annan íkornann (karlinn held ég). Við tókum með okkur hnetur sem við gáfum honum og hann tók sko hraustlega til matar síns!
Myndir
at
09:09
5
comments