Sunday, 15 June 2008

Hæ hó jibbý jei...

Við fórum á 17. júní hátíð hjá Íslendingafélaginu í gær. Fyrst var hátíðardagskrá í St. Lukes kirkjunni í Chelsea og á eftir voru seldar grillaðar SS pylsur og íslenskt sælgæti.
Á 17. júní sjálfan verður eitthvað lítið um hátíðarhöld hjá okkur, bara venjulegur dagur, en ætli við gerum nú ekki gott við okkur í mat og drykk um kvöldið. Við erum vön að grilla á 17. júní og höldum örugglega í þá hefð!

Wednesday, 11 June 2008

Lukkugrísir

Það sem kemur hér á eftir er heilagur sannleikur, hversu ótrúlegt sem það virðist!
Eva og Jóhanna vinkonur Unnar voru hjá okkur í síðustu viku og einn daginn keyptu Unnur og Jóhanna sér saman Cosmopolitan blað. Blaðinu fylgdi skafmiði og lukkgrísirnir unnu viku siglingu um grísku eyjarnar fyrir tvo! Þegar Jóhanna var farin aftur til Íslands keypti hún sér annað Cosmopolitan blað sem fylgdi eins skafmiði og vann aðra viku siglingu um grísku eyjarnar fyrir tvo!
Hverjum finnst það þær eigi að bjóða mæðrum sínum með sér í siglinguna?

Monday, 2 June 2008

Unglingar

Það er búið að vera mikið líf og fjör hjá okkur undanfarið, Róbert vinur Atla var í heimsókn í síðustu viku og Eva og Jóhanna vinkonur Unnar eru búnar að vera hér síðan á miðvikudag.
Á tímabili voru 6 unglingar á heimilinu og mikið fjör - útlitið á unglingaherbegjunum minnir töluvert á myndirnar sem við sjáum af húsnæði eftir jarðskjálftann á Suðurlandi.
Á föstudaginn fórum við öll í tívolí sem heitir Thorpe Park , tókum lest þangað og vorum allan daginn. Það var mjög skemmtilegt, fullt af stórum tækjum, en alveg svakalegar biðraðir í þau. Það var misjafnt hvaða tæki fólk þorði að fara í, sumir létu sér minni tækin alveg nægja!